Grifflur, vafningar, teygjubönd og annar búnaður er ekki leyfilegur nema vegna meiðsla og þá í samráði við dómara.
Dýfur strákar
Dómari telur keppanda inn í lyftu.
Keppandi skal rétta úr höndum og fara niður í 90 gráður.
Keppandi skal vera með uppréttan búk í lyftu.
Keppandi skal krossleggja fætur
keppandi má lyfta fótum svo lærleggir fari upp í 30 gráður
Keppandi má ekki spyrna í bakhlið tækis.
Keppandi má ekki hvíla lengur en 3 sek á milli lyfta.
Keppandi skal vera í sokkum, skór ekki leyfðir.
Milli handfanga eru 60 cm ( miðja -miðja )