Nú geta íþróttahús fest kaup á æfingatækjum fyrir Skólahreysti. Icefitness hefur hannað og þróað tækin og á að hengja þau á rimla í íþróttasölum.
Tækin eru fyrir upphífingar - armbeygjur - dýfur og hreystigreip.
Tækin eru einföld, sterk og auðveld í notkun. Settið er í sömu hlutföllum og keppnistæki Skólahreysti.
Þau eru smíðuð úr járnprófílum sem síðan eru pólyhúðuð. (máluð)
Upphífingatækið er með riflaða stöng en hreystigreipatækið með slétta stöng.
Armbeygju og dýfutækin eru með gúmmíhandföng.
Höfum einnig útbúið teyjur á upphífinga og dýfutæki, mismunandi langar. þær þarf að panta sérstaklega. Þær auðvelda lyftur á æfingum.
Nokkrar myndir eru af tækjunum hér að neðan. Á næst efstu myndinni sést þægileg uppstilling á tækjunum þegar þau eru ekki í notkun. Þar sést einnig teyja.
Verð : Settið með fjórum tækjum kostar 115.000 kr
Teyjur kosta báðar saman 11.500 kr.
Verð eru án VSK.
Þeir sem vilja nánari upplýsingar eða festa kaup á tækjunum sendið mail á skolahreysti@skolahreysti.is
Skólahreystisett / Upphífingar - Dýfur - Hreystigreip - Armbeygjur
Hreystisett í geymslu
Upphífingatæki - Breidd á slá 1m
Dýfutæki
Hreystigreipartæki - slétt stöng
Armbeygjutæki
Upphífingar / riffluð stöng - gott grip
Varamannabekkurinn er rétta hæðin undir fætur í armbeygjum, ca 35 cm. Gúmmí á handföngum.
Dýfur - gúmmí á handföngum
Hreystigreip - slétt stöng
Upphífingatæki með teygju - hægt að stilla teygju eftir stærð.
Dýfutæki með teygju - hægt að stilla eftir stærð.
Teygja á upphífingatæki
Teygja á dýfutæki